Tilkynningar

Undirbúningur stjórnlagaþings og þjóðfundar

2.7.2010

Hafinn er undirbúningur stjórnlagaþings og þjóðfundar. Á fundi Alþingis 16. júní 2010 var kjörin sjö manna stjórnlaganefnd sem ætlað er að undirbúa þjóðfund um stjórnarskrármálefni. Enn fremur hefur forsætisnefnd Alþingis skipað þriggja manna undirbúningsnefnd stjórnlagaþings sem ætlað er að undirbúa stofnun og starfsemi stjórnlagaþingsins ásamt undirbúningi fyrir þjóðfund.

I. Stjórnlaganefnd


Á fundi Alþingis 16. júní sl. var kjörin sjö manna stjórnlaganefnd sem ætlað er að undirbúa þjóðfund um stjórnarskrármálefni. Þá er nefndinni ætlað að vinna úr upplýsingum sem safnast á þjóðfundinum og afhenda stjórnlagaþingi þegar það kemur saman. Stjórnlaganefndin skal jafnframt annast söfnun og úrvinnslu fyrirliggjandi gagna og upplýsinga um stjórnarskrármálefni sem nýst geta stjórnlagaþingi og enn fremur leggja fram hugmyndir til stjórnlagaþings um breytingar á stjórnarskrá þegar það kemur saman.

Stjórnlaganefndina skipa Aðalheiður Ámundadóttir, Ágúst Þór Árnason, Björg Thorarensen, Ellý K. Guðmundsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Njörður P. Njarðvík og Skúli Magnússon.

II. Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings


Forsætisnefnd Alþingis hefur skipað þriggja manna undirbúningsnefnd stjórnlagaþings. Nefndinni er ætlað að undirbúa stofnun og starfsemi stjórnlagaþingsins ásamt undirbúningi fyrir þjóðfund. Þá er undirbúningsnefndinni ætlað að undirbúa kynningu á starfsemi þingsins og setja upp vefsíðu þess, útvega húsnæði og undirbúa ráðningu starfsmanna þingsins. Einnig skal nefndin hefja gagnaöflun til undirbúnings fyrir tillögugerð stjórnlagaþings.

Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings skipa Þorsteinn Magnússon, formaður, 
aðstoðarskrifstofustjóri á Alþingi, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og Sigrún Benediktsdóttir hdl.